|
Reglur og umgengni
Umsjónarmaður
Verðskrá
|
Um húsið
Húsið er staðsett við Costa Blanca ströndina á Gran Alacant Monte Y Mar og er í 10 mínútna akstursfjarlægð fra Alicante flugvelli. Það getur varla verið þægilegra að komast á áfangastað.
Þetta er raðhús á tveimur hæðum og kjallari samtals 120 fermetrar ásamt 40 fermetra sólpalli á þaki þess. Þaðan er fallegt útsýni í átt að Alicante og niður að sjó. Sameiginleg sundlaug fyrir húskjarnann er í einnar mínútu göngufæri frá húsinu og er gengið meðfram endahúsi upp brekkuna og þar til vinstri. Til að komast inn á laugarsvæðið þarf lykil, sem er geymdur í skáp í húsinu.
Það er ca. 15 til 20 mínútna göngutúr niður á strönd eða 3 mínútur í bíl. Einnig er hægt að taka strætó, sem stoppar á móti apótekinu ofar í hverfinu, en þangað er 5 mínútna göngutúr. Á sama stað stoppa einnig strætisvagnar sem fara til Santa Pola (15 mínútna fresti) og Alicante (30 mínútna fresti).
Hjólalest fer einnig um svæðið og hægt er að taka hana niður á ströndina og til matvöruverslarinnar Merkadona. Lestin fer hring um svæðið og stoppar þar á meðal við apótekið.
|