Húsið, húsreglur, þrif og góð ráð
Gangið vel um húsið.
Athugið að hafa útidyralykilinn alltaf með ykkur þegar þið farið út úr húsinu, því það er ekki hægt að opna útidyr nema með lykli.
Auka rúmföt eru í skápum og ef skipt hefur verið á rúmfötum á leigutíma, skilast það hreint.
Allur almennur frágangur skal fara fram áður en húsið er yfirgefið. Takið af rúmum og setjið í þvottakörfuna ásamt síðasta umgangi af handklæðum.
Einnig skal skila handklæðum hreinum, nema síðasta umgangi.
Allt leirtau skal vera hreint og gengið frá því í skápa. Strjúkið létt af ískáp og ofni ef þarf. Ekki skilja eftir mat í opnum umbúðum. Öllu sorpi skal hent úr húsinu og muna að afhenda lykla til umsjónarmanns og gera upp þrifin við hann
Með ósk um notarlega og ánægjulega daga í húsinu.
Kveðja
Gunnar og Sæa
|