Frábært raðhús á Alicante til leigu
Húsið leigist til lengri eða skemmri tíma. 10 mínútur frá Alicante flugvelli, stutt á ströndina og verslanir í nágrenninu.
Nýleg sundlaug við hliðina á húsinu. Frábær aðstaða fyrir alla fjölskylduna.
Húsið er nýlegt á þremur hæðum þar sem svefnpláss er fyrir allt að 10 manns. Í kjallara er rými með hjónarúmi og tveimur einföldum rúmum ásamt barnastóll og barnarúmi. Á fyrstu hæð er borðstofa og sjónvarpsstofa, eldhús og baðherbergi. Á annarri hæð eru tvö svefnherbergi með svefnplássi fyrir 4 ásamt baðherbergi. Uppi á þakinu er rúmgóð sólverönd með útsýni. Loftkæling er í öllu húsinu.
Ef þess er óskað er möguleiki á að aka gestum til og frá flugvelli.
Á Alicante svæðinu eru um það bil 25 golfvellir og er húsið tilvalinn áfangastaður fyrir litla golfhópa sem ætla að fara erlendis í golf. Getum útvegað fleiri hús á sama svæði ef óskað er.
Svefnpláss fyrir 6-10 manns.
Hér á síðunni eru ýmsar upplýsingar um húsið, umhverfið og annað áhugavert efni. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum, hikið ekki við að hringja eða skrifa.
|