Gisting Spáni

Spánn

Að ferðast á Spáni

Forvarnir

Varist þjófnað

Þjófnaðir eru algengir og því er nauðsynlegt að hafa allan varann á. Geymið peningaveski ekki í aðgengilegum vösum eins og rass- og brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur ykkar á stólbak eða aðra staði þar sem þið getið ekki  haft auga með henni. Forðist að taka verðmæti með ykkur á ströndina.

Varúð við sjóböð

Vert er að hafa vel í huga aðgæslu þegar ungir og fullorðnir eru á ströndinni. Hafa ber í huga að fylgjast vel með yngri kynskóðinni. Hafstraumar eru mjög breytilegir frá degi til dags og þarf því að fylgjast vel með fjarlægð frá landi og kynna sér hvernig á að bregðast við slíkum aðstæðum.
Á baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur og til að allir geti áttað sig á hvernig aðstæður eru til sjóbaða hverju sinni, er flaggað mismunandi litum fánum sem þýða eftirfarandi:

Rauður fáni – bannað að fara í sjóinn
Gulur fáni – Aðgát skal höfð við böðun
Grænn fáni – Ládeyða og gott baðveður

Hiti og sól

Mikilvægt er að hafa í huga, þegar heitt er og sólríkt, að drekka ríkulega af vatni og nota sólarvörn. Það er engin ástæða til að láta hluti eins og hitaslag, sólsting eða að sólbrenna, eyðileggja fríið fyrir sér. Það er bæði einfalt og ódýrt að koma í veg fyrir slíkt. Notið sólarvörn með hárri vörn fyrst eftir að komið er og minnkið síðan. Maður verður ekki sólbrúnn af því að brenna! Mælt er með að nota hatt á yngstu börnin

Símar 694 5339 og 772 9411 || Email Gunnar Stefánsson