Áhugavert
Jabarca er eyja rétt utan við strönd Gran Alacant og ganga ferjur þangað alla daga frá Alicante og Santa Pola. Eyjan er eingöngu 1750 metra löng og 300 metrar þar sem hún er breiðust. Skemmtilegur staður til skoðunarferðar og böðunar
Munið að Gran Alacant er ein af náttúruperlum Spánar og því víða mjög fallegt landslag sem fólk ætti að reyna að drekka í sig eftir bestu getu.
Mikið er um markaði á Costa Blanca svæðinu. Í borgum og bæjum er haldnir markaðir sem yfirleitt standa yfir í einn dag. Mikið líf og fjör er á þeim og þar eru helstu vörur grænmeti, ávextir, ýmsar ferskvörur, fatnaður, úr og skartgripir og fleira. Hér á eftir verða nokkrir nefndir:
Götumarkaður er haldinn í næsta nágrenni við húsið alla fimmtudaga frá kl. 10-14. Markaðurinn er eingöngu í 3-5 mínútna göngufæri og því tilvalið að rölta þangað og skoða sig um. Þar er hægt að gera góð kaup á ýmsu smádóti, ávöxtum og grænmeti, skóm og fleira.
La Murada er meðalstór sveitamarkaður við aðalgötu bæjarins sem er haldinn á sunnudögum. Ekið eftir A-7 og beygt útaf við útgang 81.
Sjá nánar undir tenglum.
|