Gisting Spáni

Nágrennið

Verslun

Áhugaverðir staðir

Afþreying

Afþreying

Hér á eftir verður bent á nokkra staði þar sem skemmtun er í fyrirrúmi. Skoðið lýsinguna og ef þið viljið nánari upplýsingar getið þið kíkt á heimasíður viðkomandi staða undir tenglum.

Aquapolis Aquapolis er vatnagarður sem er staðsettur í Torrevieja. Garðurinn hefur upp á allt að bjóða varðandi sundlaugar og vatnaleiktæki. Frábær garður fyrir alla fjölskylduna. Stutt að fara í bíl!
Rio Safari Rio Safari dýragarðurinn er staðsettur á milli Elche og Santa Pola. Dýragarður, veitingar og trampólín o.fl.
Terra Mitica Terra Mítica er langstærsti skemmtigarður landshlutans. Þarna er allt sem skemmtigarðar haf upp á að bjóða og garðurinn er það stór að það tekur nokkrar dagsheimsóknir að njóta alls þess sem boðið er upp á.
Pola Park Pola Park er lítill skemmtigarður í Santa Pola. Fullt af leiktækjum, hoppipúðum, rennibrautum, mini golf, veitingastaðir o.fl. Ókeypis aðgangur!
Hellir

Cueva de Calaveras hellirinn er nálægt bænum Busot í aðeins 24 km fjarlægð frá Alicante. Geysimikill hellir sem líkist dómkirkju.

Tabarca Tabarca, lítil eyja rétt utan við Alicante. Tíðar ferjuferðir frá Alicante og Santa Pola. Hér er hægt að sjá nokkrar myndir.
Aqualandia Aqualandia vatnaland við Benidorm. Einn stærsti vatnagarður Spánar
Mundomar Mundomar er skemmtilegur sædýragarður sem býður upp á mörg skemmtiatriði með dýrunum. Aðalsýningaratriðið er 40 mínútna löng sýning með höfrungum... ekki missa af þessu.
Festilandia Festilandia er lítið og skemmtilegt tívolí inni í Benidorm við svokallaðan "Laugaveg". Her eru nokkrar myndir frá svæðinu.
Terra Natura

Terra Natura er af nýjustu kynslóð dýragarða, en hönnun garðsins er þannig að gesturinn upplifir ekki hefðbundin búr. Gestir garðsins upplifa mun meiri nánd við dýrin. Glæsilegur dýragarður.

Port Aventura Port Aventura skemmtigarðurinn er staðsettur rétt utan við Benidorm. Frábær garður með öllu!
Símar 694 5339 og 772 9411 || Email Gunnar Stefánsson