Gisting Spáni

Spánn

Að ferðast á Spáni

Forvarnir

Kreditkort og Debetkort

Visakort og Eurokort er hægt að nota í flestum verslunum og veitingahúsum, en mælt er með að fólk taki út reiðufé í hraðbönkum fremur en að nota kortin daglega.

Rafmagn

Á Spáni er 230 volta rafmagn, sem er það sama og á Íslandi og annars staðar í Evrópu. Tenglar eru sömu tegundar og á Íslandi og því ekki nauðsynlegt að taka breytistykki með sér.

Þjórfé

Þjórfé er ekki innifalið í reikning veitingahúsa og er venjan að bæta við 5-10% við reikningsupphæðina, allt eftir því hversu þjónustan var góð.

Drykkjarvatn

Spánska vatnið er ekki skaðlegt en er vont á bragðið. Í húsinu er aukakrani í eldhúsinu til drykkjar og uppáhellingar. Munið að það er nauðsynlegt að drekka meira en maður gerir alla jafna heima á Íslandi og þá meina ég af vatni.

Tímamismunur

Tímamismunur miðað við Ísland eru tveir tímar á sumrin og einn tími á veturna. Klukkunni er breytt í sumartíma síðustu helgina í mars og í vetrartíma síðustu helgina í október.

Bílaleiga og annað er varðar umferð

Lágmarksaldur ökumanns á bílaleigubíl er 23 ár og tveggja ára reynslu í akstri er áskilin. Þegar bifreið er tekin á leigu skal framvísa gildu ökuskírteini og vegabréfi.
Í miðborgum Alicante, Benidorm og Albir eru bílastæðagjöld. Vegatolla þarf að greiða á hraðbrautum. Upplýsingar um bílaleigur er að finna undir tenglum.

Símar 694 5339 og 772 9411 || Email Gunnar Stefánsson