Gisting Spáni

Nágrennið

Verslun

Áhugaverðir staðir

Afþreying

Verslun og þjónusta í hverfinu

Veitingastaðir, verslanir, matvörubúð, banki, internetkaffi og bakarí eru í hverfinu í ca. 5 mínútna göngufæri. Meðal veitingastaða sem hægt er að mæla með er enska steikhúsið. Ská á móti X COOP matvóruverslaninnar er kínverskur matsölustaður sem er í fínu lagi. Þó getum við ekki mælt með Dir Karto matsölustaðnum, sem er við hlið X COOP.


Ódýrast er að versla matvöru og aðrar daglegar nauðsynjar í Lidl og Aldi, en þar er meiri áhersla lögð á lágt matvöruverð en innréttingar. Mjög góð Mercadona matvöruverslun er í litlu verslunarmiðstöðinni  áður en komið er upp í brekkuna sem liggur að hverfinu. Þar er gott úrval matvöru og fleiri nauðsynjar á góðu verði.


Götumarkaður  er haldinn í hverfinu alla fimmtudaga frá kl. 10-14. Markaðurinn er eingöngu í 3-5 mínútna göngufæri frá húsinu og því tilvalið að rölta þangað og skoða sig um. Þar er hægt að gera góð kaup á ýmsu, t.d. grænmeti, ávöxtum, skóm, bolum og o.fl.

Fleira um verslun og þjónustu

Margir stórmarkaðir eru við veg N-332 og má nefna Carrefour sem býður upp á allt milli himins og jarðar. Þessar verslanir er að finna víða á svæðinu.


Consum matvöruverslanir bjóða upp á mikið úrval af matvöru og dýrindis kjöti og hafa gott úrval af fiski á boðstólum.


Í borgum á Costa Blanca svæðinu er að finna sérverslanir með öll helstu tískumerki heims. Margar verslunarmiðstöðvar eru í sömu borgum eða rétt utan við þær og þá venjulega staðsettar við samgönguæðar til þeirra.

Habaneras er nýleg og vel staðsett verslunarmiðstöð í Torevieja rétt við N-332 á móts við Aquapolis garðinn og eina af verslunum Carrefour. Þetta er stór verslunarkjarni með öllum helstu tískuvöruverslunum eins og H&M, Zara, Jack and Jones, Berskha og C&A. Fjöldi veitingastaða er við hliðina ásamt keilu- og leiktækjasal. Þar er einnig bíó, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.


Verslunarmiðstöðin Dos Mares í San Javier hefur einnig fjölda verslana og veitingastaða. Þangað er sérlega skemmtilegt að fara með yngstu kynslóðina í leiktækjasalinn. Einnig er vert að benda á stórmarkaðinn Eroski, en þar er að finna ótrúlegt vöruúrval á sanngjörnu verði.


Nuevo Condomina er glæsileg verslunarmiðstöð rétt við Murcia, sem er lítil borg í um það bil 75 km fjarlægð frá Alicante. Nýleg og mjög stór verslunarmiðstöð.
Skammt frá Nuevo Condomina er Ikea verslun með mun fjölbreyttara vöruúrval en við þekkjum heima og á mun betra verði.


Espacio Mediterrarco er ný og mjög stór verslunarmiðstöð í borginni Cartagena. Glæsileg miðstöð og vel þess virði að heimsækja.

Skoðið tenglana hér á síðunni ykkur til frekari glöggvunar.

 

Símar 694 5339 og 772 9411 || Email Gunnar Stefánsson