Gisting Spáni

Nágrennið

Verslun

Áhugaverðir staðir

Afþreying

Benidorm

Það er vel þess virði að taka frá dag og keyra til Benidorm. Mesta götu- og næturlífið er við ”Strandgötuna”, sem er fallega upplýst göngugata ásamt tilheyrandi götum sem liggja þar að. Þar er einnig að finna enska hverfið með alla sína pöbba og skemmtistaði.

Við strandgötuna nær gamla bænum eru margir músikstaðirnir og fjöldi kaffihúsa ásamt svokölluðum ”beach club” útibúum, en það eru útibú frá stóru klúbbunum, sem allir eru staðsettir við þjóðveginn ofan við Benidorm. Hér má nefna Pacha, KM, Penelope, Amnesia og Moai.

Einn glæsilegast næturklúbbur Spánar er Benidorm Palace, en þar koma fram frábærir skemmtikraftar, fjöllistamenn, söngvarar og dansarar og töfra fram óborgaleg atriði.

Anenida de Mediterraneo, sem oft er nefnd Laugavegurinn” er aðalgatan á Benidorm þar sem finna má fjölda verslana eins og Benetton, Zara, Mango, LaCoste og fl. Gatan kvíslast við Plaza Triangular torgið í minni verslanir og göngugötur í hjarta borgarinnar.

Altea

Altea er fallegur gamall bær uppi í hæðunum skammt frá Benidorm. Þar er að finna mjög fallega kirkju og gaman er að þræða þröngar göturnar sem eru fullar af smáverslunum, listaverkabúðum og veitingastöðum. Endilega prófið Oustau, en þar er matur og þjónusta frábær.

Murcia

Murcia er höfuðborg héraðsins, gömul og virkilega falleg borg. Þar er glæsileg dómkirkja með miklum fjölda listaverka. Hið víðfræga listasafn Sal Zilb er þarna í nágrenninu, uppfullt af tréskurðarlist og málverkum frá síðustu 500 árum. Listasafnið Musseo de la Belle Artes hefur að geyma listaverk eftir alla frægustu listmálara Spánar. Allir ofangreindir staðir eru í göngufæri við hvern annan í miðborginni. Mælt er með því að setjast niður á torginu við kirkjuna, fá sér hressingu og skoða mannlífið.

Elche

Borgin Elche er oft nefnd Pálmahöfuðborg Evrópu, en þar eru milljónir pálmatrjáa um alla borg. Í borginni er sérlega fallegur lystigarður með mikið að gróðri, styttum og listaverkum ásamt leiktækjum fyrir börnin. Dómkirkjan í Elche er falleg og mælt er með því að príla upp 50 metra háan klukkuturninn, en þar uppi er gott útsýni yfir nágrennið.

Torrevieja

Borgin er um 50 km suðvestan við Alicante. Til að komast þangað er ekið suður N-332, sem liggur meðfram Costa Blanca. Í Torrevieja er skemmtilegur götumarkaður með litlu tívolí og er markaðurinn opinn öll kvöld.

Santa Pola

Er 30 þúsund manna bær rétt sunnan við Gran Alacant. Þetta er ferðamanna- og fiskibær. Mjög vinsæll markaður er haldinn alla laugardaga í Santa Pola og er hann opinn á milli kl. 9-14. Þar úir og grúir af ýmsu dóti, mest nýju og líka notuðu

Orihuela

Orihuela er borg í nágrenni við Elche með þröngum götum, fjölda verslana og veitingahúsa. Skemmtileg upplifun að þvælast þarna um. Vil einnig benda á að skoða Rubalcalva höllina, sem er virkilega falleg.

Rojales

Skemmtilegur smábær um 10 km norður af Habaneras. Í hlíðinni fyrir ofan bæinn að er finna svokallaða listamannahella, en þar hafa listamenn grafið hella inn í hlíðina sem þeir nota sem vinnustúdíó og sumir einnig sem heimili. Þar er einnig áhugavert hús sem er þakið skeljum og litlum flísum að innan og utan.Hægt er að kaupa sér minjagripi og fá sér veitingar á nokkrum stöðum í þorpinu.

Busot

Busot is a small, yet charming village near to El Campello with 1,500 inhabitants whose houses are grouped around a hill topped by a 12th century Moorish castle. The ruined castle formed part of Alicante's medieval defence system. Busot is situated within sight of the sierra known as the Cabeco d' Or (Golden Hill) which has beautiful views over Campello and neighbouring towns near to Alicante.
Busot er smábær um það bil 20 km norðan við Alicante í nágrenni við El Campello. Húsin í bænum eru í byggð í þyrpingu kringum fjallstopp sem hýsir kastala. Einstakur dropasteinshellir “Caveste Canalobie” er í þorpinu og er mikil upplifun að skoða. Utan við hellinn er frábært útsýni yfir land og byggðir á svæðinu.

Guadalest

Er fjallaþorp norðan við Benidorm sem hefur verið varðveitt að mestu í sinni upprunalegu mynd. Á meðal áhugaverðra staða er 300 ára gamalt hús, sem var heimili Ordeu ættarinnar í margar aldir. Í húsinu er minjasafn með alls kyns húsgögnum, listaverkum og áhöldum frá þessum tíma. Hægt er að fara upp á hæðina fyrir ofan húsið og njóta útsýsins. Fjöldi minjagripaverslana og veitingastaða er í þorpinu.

Símar 694 5339 og 772 9411 || Email Gunnar Stefánsson